hlemmur er staður til að fylgjast með fólki á

ég hef ætíð haft ákveðna fordóma gagnvart hlemmi, samt sem áður hef ég notað hlemm líkt og margir aðrir Íslendingar, ég samt hætti mikið að nota hlemm eftir að ég fór að keyra mikið á míkrunni minni, en tá myndaði ég einhverskonar söknuð við hlemm seint og síðar meir, núna finn ég að hlemmur er ein af teim góðu minningum sem ég á mér, ég sakna hlemm, ég ætla að skella mér í heimsókn tangað innan tíðar og jafnvel gersast svo flippaður að taka strætó sona til gamallar minningar bara helst á sumar tíma, ekki gaman að sitja í ísköldum vagni eða hvað?

ég hinsvegar gerði um daginn, soldið síðan samt, rannsókn á hlemmi, ég var með myndaða skoðun á hlemmi áður en ég fór tangað til að gera Eigindlega rannsókn á hlemmi, ég sat fastur á því að hlemmur væri sorastaður og þar yrði mikið af rónum sem væru að angra fólk og hangadi þar.

Það kom hinsvegar mjög á óvart að hlemmur var ekki eins slæmur staður og ég hafði ýmindað mér, en þess má geta að ég gerði rannsókn mína einungis að næturlagi og ég get tví ekki alhæft hvernig staður hlemmur sé nema bara á kvöldin. Þá er líklegt að aðrir sem myndu gera rannsókn á hlemmi fengi allt aðrar niðurstöður en ég. Það var tekið vel á móti mér, og hliðarvörðurinn var til í að svara spurningum án þess að marr turfti að tala hann mikið til. Hlemmur er strætisvangabiðstöð sem hefur verið starfrækt í um 30 ár og hefur tað gengið misvel, það er ekki sjaldan sem marr tekur ettir auglýsingum sem eru að reyna hvetja fólk til að nota strætisvagna kerfið, en frekar hefur dregið úr tví að fólk sækist í að nota tessa almenningsvagna að miklum hluta til vegna hve slæmar sögur hafa farið að teim og hve mikið af rónum og útigangsfólki séu með læti á hlemmi, en er tað ekki samt liðin tíð? enda keisarinn löngu farinn frá hlemmi og skólakrakkar með frían aðgang að tessari strætisvagna notkun í dag.

ég fann tá eina mótsagnargrein eftir mig í mbl.is

Ný hangmiðstöð!

GIF6QL85

ÉG las fyrir nokkru grein í Morgunblaðinu þar sem haft var eftir Ingibjörgu Sólrúnu borgarstjóra að hún hefði þá hugmynd að láta rífa Hlemm og hafa aðalstoppistöðina á torginu. En lítið hefur heyrst meir um það mál. Það vakna margar spurningar um hvað muni þá verða um allt þetta fólk sem hangir á Hlemmi? Þetta fólk er engir aumingjar hef ég heyrt, dæmi eru til um að margt þeirra sé sprenglært fólk sem hefur orðið fyrir þeirri ógæfu að falla fyrir dópi og drykkju. Þetta fólk er ekki fært um að sinna vinnu og margir þeirra eru lýstir öryrkjar, í stað þess að hanga heima hjá sér fer þetta fólk á Hlemm til þess að drepa tímann. Fólk sem hins vegar fer á Hlemm einungis til þess að nota strætisvagnana verður oft vitni að slagsmálum, verður jafnvel fyrir áreitni og fleiru. Veit ég um margt fólk sem gefist hefur upp á strætisvagnakerfinu, ekki einungis út af Hlemmi, heldur einnig síbreytilegum leiðarkerfum og tímasetningum sem SVR er þekkt fyrir að gera ár hvert, svo ég tala nú ekki um að margir forðast það að bíða inni á Hlemmi og standa úti í hvernig veðri sem er og bíða eftir vagninum sínum, margt af þessu fólki endar á því að kaupa sér bíl. Ef borgarstjóri er sífellt með þessar herferðir um að fólk eigi að ferðast með strætó frekar en að keyra bíl þá er ég með smáráðleggingu, það þarf að gera einhverjar róttækar breytingar sem koma öllum aðilum í hag. Ég tel hugmyndina um að rífa Hlemm vera mjög góða, en vitanlega viljum við ekki svipta þetta ágæta fólk sem hangir þar húsnæði til þess að hanga í. Hvernig væri þá að láta byggja einhverja hangmiðstöð þar sem þetta fólk gæti verið í og eða fundið eitthvað húsnæði fyrir slíkt og jafnvel haft einhvern bar í líkingu við gamla Keisarann þar. Kannski myndi jafnvel fólkið sem sækir í krána í Austurstræti jafnvel sækja í þessa hangmiðstöð og myndi það eflaust gleðja verslunareigendur í Austurstræti sem hafa kvartað sáran undan ónæði vegna gesta kráarinnar. Ég tel það bara ekki fara saman að hafa strætisvagnastöð sem hangmiðstöð, það er að vísu ekki bara þetta ágæta fólk sem ég talaði um áðan sem hangir á Hlemmi, heldur hefur það komist í tísku hjá unglingum að hittast þar á kvöldin og hanga þar og hrella aðra sem bíða eftir vögnum. Ég tók einnig eftir því að farið er að hafa stundum öryggisverði á Hlemmi til þess að hindra slagsmál og fleira. Tel ég það ólíklegt að ef Hlemmur yrði rifinn að þau myndu færa sig niður á stoppistöðina á torginu og hanga þar, húsnæðið er miklu minna og í raun miklu hentugra sem biðskýli fyrir strætisvagna, en óhentugra sem hangmiðstöð. Að lokum vil ég geta þess að ég er meðvitaður um að umræður um Hlemm eru viðkvæmt málefni í dag og ég vona að ég hafi engan sært með þessari grein, en mér finnst vera löngu kominn tími fyrir breytingar af þessu tagi og vona að með þessari grein geti eitthvað farið að þokast áfram í slíkri breytingu, sem verði öllum til hins betra. Ég vill einnig nota tækifærið og óska öllum gleðilegs nýs árs.
ég verð samt að játa að ég er ekki á tessari skoðun enntá og tegar tetta var skrifað og tessi hræðilega mynd af mér birt með í morgunblaðinu, tá hafði ég örugglega dottið illilega á hausinn, ég sé ekki hvernig Reykjavík væri án hlemm, hlemmur er partur af Reykjavík.
en aftur að rannsókninni:
fyrsti dagurinn á hlemmi:
það er mánudagskvöld, 15.september og klukkan er 21:50, þrátt fyrir að tað sé liðið vel á kvöldið er enntá margt fólk tarna á ferli, ég settist niður á einn bekk þarna inni, og byrjaði að skrá niður upplýsingar um fólkið sem er þarna inni. Ég kom allskyns fórk tarna inn, ég var samt ekki var við neinar mæður með börn, né gamalar konur, ég var mest var við unglinga á aldrinum cirka 14-18 ára, og ég sá mikið af gömlum mönnum sem voru einir á ferð, unglingarnir voru annaðhvort tveir saman eða fleirri í hópum, þó varð ég var við að sumir virtust vera einir á ferð, einnig var sumt fólk líka dálítið skuggalegt og má þar nefna t.d. einn mann sem var líklega 30 ára, sem gekk með hund í bandi, hann virtist ekki vera að bíða eftir neinum vagni, heldur gekk hann mikið um og það leit út sem hann væri bara að hanga þarna, hann blandaði geði við unglingana, manninn í upplýsingunum og nokkra aðra vegfarendur svo gerði hann sér ferðir fram og tilbaka og hann virtist vera kunnugur staðnum, sennilega sækjir hann hlemm oft. Mér leið ágætlega þarna á meðan rannsókninni stóð, og mér fannst áhugavert að fylgjast með þessu fjölbreytta liði sem sækjir hlemm, stundum fannst mér þó óþægilegt þegar einhverjir veittu mér athygli og fóru að fylgjast með mér, ég býst við að sumir hafa einungis verið forvitnir að vita um hvað ég væri að skrifa svona mikið um.
framhald næst
en úr einu í annað tá fann ég líka aðra grein ettir mig sem er öllu heldur léttari en sú fyrri

Ertu falleg/ur?

G236PH9T

 

FLEST allt í dag virðist byggjast á því að vera "inn" og til þess þarf ákveðið útlit. Það þekkja allir stöðluðu Barbí- og Ken-ímyndina sem gerði Jónínu Benediktsdóttur brjálaða, og kom hún með þessa frægu setningu: ,,Drepum Barbí.


FLEST allt í dag virðist byggjast á því að vera "inn" og til þess þarf ákveðið útlit. Það þekkja allir stöðluðu Barbí- og Ken-ímyndina sem gerði Jónínu Benediktsdóttur brjálaða, og kom hún með þessa frægu setningu: ,,Drepum Barbí."

Til eru fjölmörg dæmi þess að fólk fyllist minnimáttarkennd vegna þess að það er ekki í útliti eins og grindhoraðar tískufyrirsætur eða kynæsandi poppstjörnur. Mjög skýr skil eru á milli þess hvað telst fallegt og hvað ljótt. Samkvæmt þessum óskráðu lögum getur fita aldrei verið annað en lýti, nef má ekki vera of stórt og kvenleggir ekki of loðnir. Fólk sem er á einhvern hátt öðru vísi í útliti er jafnvel lagt í einelti, til dæmis í skólum, eða haft útundan því útlit þess er ekki talið ásættanlegt. Það er ekki að furða að slíkt gerist enda eru börn heilaþvegin með öllum myndböndunum á Popp-tíví þar sem fyrirmyndirnar líta út eins og fyrirsætur, til dæmis Jennifer Lopez, Christina Aguilera, Atomic Kitten og Ricky Martin. Þetta er allt fólk sem, líkt og hundruð annarra, hefur reynt að koma sér á framfæri í krafti hæfileika sinna og var svo lánsamt að vera valið úr hópnum. Eða voru þau kannski valin vegna þess hversu sæt þau eru á sviði? Þau eru klædd í tískuföt, máluð, hárið litað og lagað þangað til lítið er eftir af hinni upprunalegu manneskju heldur er í staðinn komin óraunveruleg fígúra sem sköpuð er af markaðnum. En hvað svo þegar fegurð þeirra tekur að fölna? Þá er þetta fólk búið að vera, öðrum fegurri er falið hlutverk þess og hringrásin heldur áfram.

Staðreyndin er sú að farið er að líta á ytra útlit sem einn af helstu kostum fólks. En útlitið skiptir ekki mestu máli heldur hin innri manneskja. Þetta gæti virst gömul tugga en samt stendur hún enn fyrir sínu. Margsinnis hef ég orðið vitni að því að fólk, sem er almennt talið mjög fallegt, verður ófrítt í einni svipan þegar það sýnir sinn spillta innri mann. Svo hef ég kynnst fólki sem er talið vera mjög ófrítt en eftir kynni við það þá byrjar þetta fólk að fríkka vegna þeirrar innri manneskju sem það hefur að geyma og persónuleika. Því tel ég það fáránlegt að dæma fólk eftir ytra útliti.

Í ljósi þess að senn koma jólin langar mig til að brýna fyrir fólki að einblína á hinn innri mann í stað hins ytri og gleðjast á jólunum, jafnvel þótt ekki takist að komast í kjólinn fyrir jólin.

 

já en ein hræðilega myndin af mér sem birtist í morgunblaðinu, en allavega mun betri grein eftir mig

hehe smá flashback

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Limped

Höfundur

Daníel Halldór
Daníel Halldór
listamaður af guðs náð

Tónlistarspilari

Britney Spears - Gimme More

Nýjustu myndböndin

Limped - slutty whore Remix

hilary duff _ stranger

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 800wmagazine13
  • madonnadn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 518

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband